Síðustu
ár hefur steinteppum fjölgað verulega hér
á landi. Þau koma til vegna þess að
menn hafa verið að leita annarra leiða í
vali á gólfefni af ýmsum ástæðum.
Steinteppi hafa marga góða kosti sem sameina kosti
hefðbundina teppa og harðra gólfefni s.s. flísa.
Þau eru í senn bæði mjúk að
ganga á en hafa styrkinn frá flísunum.
Eitt er þó sem hefur valdið mönnum heilabrotum
sem er hvernig á að hreinsa þau?

Vonandi
svarar þetta hvernig á að hreinsa
steinteppin. Gjörðu svo vel að hafa samband
og við getum komið og skoðað aðstæður
og gert tilboð þér að kostnaðarlausu.
|
Staðreyndin
er nefnilega að steinteppi hafa eiginleika “teppa”
ekki síður en “harðra” gólfefna.
Með það til hliðsjónar þá
verður það deginum ljósara hvað það
er sem ber að varast svo hreinsunin takist vel og endist
lengi.

Skúfur Teppahreinsun
hefur sl 4ár verið að þróa aðferð
við að hreinsa þessi gólfefni og hefur
því gengið í gegnum allar villurnar
sem flestir eru að gera. Þ.e.a.s. að hreinsa
eins og um “hart” gólfefni væri að
ræða. Skúfur hefur yfir 20 ára reynslu
í að hreinsa hefðbundin teppi sem kemur sér
vel í steinteppum.
Daglegt viðhald þarf að vera í samræmi við ofangreinda staðreyndir en einnig er vert að huga að nokkrum sérstökum eiginleikum steinteppa, sem hefur áhrif á meðhöndlun þeirra.
---
Epoxy – “límingin”
er það fyrsta sem hafa skal í huga. Flest
óhreinindi eru fitubundin, ef þau eru það
ekki þá hreinsast þau í burtu með
ryksugun. Fitu í hefðbundnum teppum er hægt
losna við með fituleysum s.s. olíu leysiefnum.
Leifarnar af slíkum efnum eru yfirleitt ekki vandamál
í teppum en geta verið það í steinteppum.
Forðast skal að nota efni sem geta skaðað
epoxy-lakkið.
Mörg
hreinsiefni sem eru notuð á hörð gólf
eru með þá eiginleika að skilja eftir
sig filmu á yfirborðinu og er jafnvel sóst
eftir þessum eiginleika. Í steinteppum er þetta
ókostur og ástæða til að forðast.
Athugið! gólfþvottavélar eru
ekki hentug verkfæri fyrir steinteppi.
Góð(rétt)
hreinsiefni á steinteppi skilja ekki eftir filmu á
yfirborðinu heldur kristallast (duftar) og svo er gert
ráð fyrir því eigendur ryksugi þessa
kristalla í burtu síðar. Þetta er
nákvæmlega lykillinn að því
að ná árangri við að hreinsa steinteppi.
----
Reglulegt viðhald steinteppa
Reynslan
hefur kennt okkur að daglegt viðhald á steinteppum
ætti ekki að vera að skúra eins og um
hart gólf væri að ræða, heldur:
- ryksuga
reglulega með öflugri belgryksugu
stöku
sinnum moppa með rykadrægri “þurr”
moppu og/eða
moppa með blautmoppu – með hreinu vatni eða
með örlitlu af teppasápu
- Svo
að lokum – Djúphreinsa (1 til 3 sinnum
á ári, það,fer eftir umgangi og
álagi) eins og um væri að ræða
teppi og með efnum sem skilja EKKI eftir filmu
( s.s. teppasápu)
- L.iður 3. Þetta verk er unnið
með sérhönnuðu verkfæri sem tengist
á endan á barkanum frá Truckmount-vélinni.
T.d. með þeim verkfærum sem er sýnd
hér að ofan. Þessi verkfæri notum
við einnig við að hreinsa náttúrustein-gólf.
Önnur verkfæri eru notuð við venjulega
teppahreinsun en kerfið er að öðru leiti
það sama
|